Við þurfum sterk bein alla ævi því við stöndum og föllum með því. Það er alltaf nauðsynlegt að huga að beinunum því fáir sjúkdómar skerða lífsgæði eins mikið og beinþynning. Bein eru stöðugt að eyðasts og myndast og til 30-35 ára aldurs er jafnvægi á því. Eftir það fara beineyðandi frumur að hafa betur og vegna hormónabreytinga (45-60 ára) eykst hraði beineyðingar töluvert hjá sumum einstaklingum. Til að vinna að þessu jafnvægi alla ævi á eðlilegan hátt þarf að stuðla að kalkmyndun með góðri næringu og hæfilegri áreynslu.
Stronger Bones inniheldur uppbyggjandi næringarefni með margra ára rannsóknir að baki sem sýna fram á virkni fyrir beinauppbyggingu. Það hefur áhrif á styrkingu beina fyrst og fremst ásamt því að húð, liðir, neglur og meltingin njóta góðs af. Við vöndum til verka og sækjum í sjálfbærar auðlindir úr sjó og landi. Við notum hreina, islenska náttúruafurð og náttúruleg og hrein hráefni sem ekki eru erfðabreytt, til að stuðla að sterkari beinum, því með það í huga stöndum við sterkari.
Stronger Bones hefur einnig reynst vel fyrir meltinguna.
Stronger Bones frá Eylíf innheldur 90 tuggutöflur í glasi. Best er að tyggja 3 á dag með mat til að byggja upp og viðhalda sterkum beinum, alla ævi.
Stronger Bones inniheldur tvö öflug grunnefni frá móður nátturu .:
* Kalkþörunga ( Calcified seaweed ) hinn náttúrulega kalk- og steinefnagjafa úr hafinu við Ísland með um 74 stein - og snefilefni sem fyrirbyggja beinþynningu og eru ætluð öllum sem ekki fá nægilegt kalk og steinefni úr fæðunni.
* Kísil frá GeoSilica, náttúrulegt steinefni sem gegnir lykilhlutverki í myndun og viðhaldi beina.
Til að auka enn frekar á heilbrigði og styrk beina inniheldur Stronger Bones einnig C, D3, zink og mangan og er ríkt af kalki, magnesium og stein og snefilefnum.