Mini bands æfingateygjurnar frá FitCo eru vandaðar teygjur sem henta vel í fjölda æfinga en eru mest notaðar í hliðarskref o.fl. æfingar fyrir fótleggi. Teygjurnar eru úr efni sem að klípur ekki í húð og rúllast ekki upp. Þar sem að teygjurnar eru styrktar með tauefni þá morkna þær ekki eins og gúmmíteygjurnar og endast því mun lengur.
Mini bands teygjurnar eru snilld í ferðalagið enda taka þær afar lítið pláss en gera þér kleift að gera fjölda æfinga. Teygjurnar eru líka afar sniðugar í upphitun en með því að virkja vel vöðva eins og t.d. rassvöðva áður en farið er að hlaupa, getur þú minnkað líkur á meiðslum.
Teygjurnar er hægt að þvo í þvottavél (undir 60°) og hengja svo til þerris. Svo að liturinn í teygjunni haldi sér sem best er sniðugt að þvo þær ekki allar saman.
- Rauða teygjan er létt
- Græna teygjan er millistíf
- Bláa teygjan er stíf