0
Hlutir Magn Verð

"Lífræn Aromandise MATCHA sælkera blanda 150 gr. " hefur verið sett í körfuna þína.

Skoða körfu

Lífræn Aromandise MATCHA sælkera blanda 150 gr.

2.795kr
- +

Verð frá kr. 2.376.- 

Staukur með 150 gr sælkera blöndu af lífrænu Matcha, kókósblómadufti og agavesykri sem dugar að öllu jöfnu í 10-15 stóra bolla af ljúfengum heitum drykk.   

Lífrænt Aromandise MATCHA te duft kemur frá Uji héraði sem er almennt talið eitt albesta te ræktunarhéraðið í Japan.  

Fylgt er ströngum aldagömlum ræktunarhefðum sem erfst hafa milli kynslóða. 

Lífrænt Aromandise MATCHA te er hlaðið andoxunarefnum, eykur orku og brennslu um allt að 20%.  

Örlítið koffein er í MATCHA sem gefur smá orkuskot sem er þó dempað af L-theanice amminosýru sem Matcha er ríkt af ásamt fleiri amminosýrum. 

Lífrænt Aromandise MATCHA hentar í öll not, hvort sem er heitt eða kalt.    Önnur uppskera af hágæða Matcha. 

 

* Magnafsláttur af öllum Vivo Life vörum,  Matcha, hunangi og húðvörum .: 2stk. 5% afsl., 3stk. 10% afsl. 4+ stk. 15% afsl. og þú blandar vörum að vild til að öðlast afslátt.

Um Aromandise MATCHA .:

MATCHA er búið til úr fersku hágæða grænu te sem kallast Gyokuru. 

Teblöðin eru meðhöndluð með gufu, síðan þurrkuð og mulin í steinmyllu þannig að engin næring úr teblöðunum fer til spillis.   

MATCHA er stútfullt af andoxunarefnum,  minnkar þreytu,  eykur orku og jafnframt talið auka grunnbrennslu líkamans um allt að 20%  

Örlítið koffein er í MATCHA sem gefur smá orkuskot sem er þó dempað af L-Theanine amminosýru sem Matcha er ríkt af ásamt fleiri amminosýrum. 

MATCHA er til í mörgum gæðaflokkum sem byggir m.a. á staðsetningu, loftslagi og aðferðum við ræktun og frágang. 

Hlíðar Uji héraðs í Japan þykir henta einstaklega vel til te ræktunar þar sem er frjór jarðvegur, hreint vatn og hentugt loftslag. 

Lífrænt Aromandise MATCHA kemur af ökrum mjög virtra framleiðanda í Uji héraði í Japan þar sem lögð er áhersla á 100% lífræna ræktun og viðurkenndar aðferðir þar sem plönturnar eru í skugga síðustu 3 vikur fyrir uppskeru sem stuðlar að hámarks amminosýrumagni í teblöðunum m.a. af L-Théanine.  

lmennt er talað um 1, 2 og 3 uppskeru. 

Aromandise Premium Ceremonial Grade MATCHA er úr fyrstu uppskeru (1st harvest ) . Fyrsta uppskera skilar að öllu jöfnu hæstu gæðum og nefnd sem Preminum Ceremonial Grade.   

Aðrar Aromandise Matcha afurðir koma úr annari uppskeru ( 2nd harvest ) sem gefur þeirri fyrstu lítið eftir og fullnægir öllum kröfum um hreinleika og gæði enda kemur mest selda Aromondise Matchað úr annari uppskeru sem er á frábæru verði miðað við gæði.    Bragðmunur er á fyrstu og annari uppskeru og margir kjósa frekar afurðir úr annari uppskeru í þau not sem hentar þeim. 

Þriðja uppskera er almennt ódýrara en alls ekki slæmt MATCHA sem gjarnan er notað í eldhús osfrv.  og jafnframt af framleiðendum sem leggja eingöngu áherslu á lágt verð. 

Aromandise notar eingöngu teblöð úr fyrstu og annari uppskeru. 

Um AROMANDISE .: 

Aromandise er franskt fyrirtæki sem sérhæfir sig í lífrænum afurðum.   Aromandise er langstærsti seljandi á Matcha í heilsuverslarnir og markaði sem sérhæfa sig í lífrænum afurðum í Frakklandi og víða um Evrópu.

Samstarf Aromandise við sömu framleiðendur í Uji, Japan hefur verið óbreytt í yfir 20 ár. 

Aromandise og Gott Líf sf / Yogi.is hafa nú tekið höndum saman um dreifingu vöru Aromandise á íslandi.   Lögð er áhersla á góða vöru og sanngjarnt vöruverð.