0
Hlutir Magn Verð

"Lífrænt hágæða Matcha frá UJI héraði í Japan 80gr." hefur verið sett í körfuna þína.

Skoða körfu

Lífrænt hágæða Matcha frá UJI héraði í Japan 80gr.

3.999kr
- +

  • Frá kr. 3.599.- (með 10% afslætti.)  
  • Magnafsláttur af öllum vörum á Yogi.is: 2stk. 5% afsl., 3stk. 10% afsl. og þú blandar vörum að vild til að öðlast afslátt. 
  • Ath.  Heimsmarkaðsverð á hágæða matcha frá Japan hefur hækkað verulega á liðnu ári eða um 75-170%.  Samningar okkar við Aromandise / birgja gerir okkur kleyft að hófstilla þá hækkun verulega.  
  • Lífrænt ræktaða Matcha teið okkar kemur frá litlum fjölskyldu búgarði í Uji héraði sem er talið eitt albesta te ræktunarsvæðið í Japan.  
  • Fylgt er ströngum aldagömlum ræktunarhefðum þar sem teblöðin eru ræktuð í skugga undir netum síðustu 3 vikur fyrir uppskeru sem eykur L-Theanine magn í blöðunum og viðheldur betur bragði og lit.   
  • Teblöðin eru meðhöndluð með gufu, síðan þurrkuð og mulin í steinmyllu þannig að engin næring úr teblöðunum fer til spillis.   
  • Matcha teið er auk L-Theanine,  ríkt af steinefnum, vítamínum og andoxunarefnum.
  • Matcha te eykur orku og brennslu,  hentar í öll not, hvort sem er heitt eða kalt.   
  • Sölueining 80gr. dugar að öllu jöfnu í 80 bolla af Matcha te og / eða smoothie eða eftir þörfum í matargerð. 

Magnafsláttur af öllum Vivo Life vörum,  Aromandise Matcha, Yerba Mate og Steens Manuka hunangi .: 2stk. 5% afsl., 3stk. 10% afsl.  og þú blandar vörum að vild til að öðlast afslátt.

 Um Matcha teið okkar .:

Matcha er búið til úr fersku hágæða grænu te sem kallast Gyokuru. 

Teblöðin eru meðhöndluð með gufu, síðan þurrkuð og mulin í steinmyllu þannig að engin næring úr teblöðunum fer til spillis.   

Matcha er stútfullt af andoxunarefnum,  minnkar þreytu,  eykur orku og jafnframt talið auka grunnbrennslu líkamans um allt að 20%  

Örlítið koffein er í Matcha sem gefur smá orkuskot sem er þó dempað af L-Theanine amminosýru sem Matcha er ríkt af ásamt fleiri amminosýrum. 

Matcha er til í mörgum gæðaflokkum sem byggir m.a. á staðsetningu, loftslagi og aðferðum við ræktun og frágang. 

Hlíðar Uji héraðs í Japan þykir henta einstaklega vel til te ræktunar þar sem er frjór jarðvegur, hreint vatn og hentugt loftslag. 

Lífræna Matcha teið okkar kemur af ökrum mjög virtra framleiðanda í Uji héraði í Japan þar sem lögð er áhersla á 100% lífræna ræktun og viðurkenndar aðferðir þar sem plönturnar eru í skugga síðustu 3 vikur fyrir uppskeru sem stuðlar að hámarks amminosýrumagni í teblöðunum m.a. af L-Théanine.  

Almennt er talað um 1, 2 og 3 uppskeru. 

Prestige Ceremonial Grade Matcha er úr fyrstu uppskeru (1st harvest )  sem skilar að öllu jöfnu hæstu gæðum.  Hentar vel í Matcha viðburði og fyrir þá sem kjósa aðeins það besta.     

Premium Ceremonial Grade Matcha er einnig úr fyrstu uppskeru (1st harvest )  sem skilar að öllu jöfnu hæstu gæðum.  Hentar vel í Matcha viðburði og dagleg not í hámarks gæðum. 
  

Aðrar Matcha afurðir okkar koma að öllu jöfnu úr annari uppskeru sem gefur þeirri fyrstu lítið eftir og fullnægir öllum kröfum um hreinleika og gæði enda kemur mest selda Matchað okkar úr annari uppskeru sem er á frábæru verði miðað við gæði.    Bragðmunur er á fyrstu og annari uppskeru og margir kjósa frekar afurðir úr annari uppskeru í þau not sem hentar þeim. 

Þriðja uppskera er almennt ódýrari og gjarnan notað í eldhús, bakstur ofl og jafnframt af framleiðendum sem leggja eingöngu áherslu á lágt verð.   

Okkar Matcha te er eingöngu úr fyrstu og annari uppskeru en hagstæð innkaup okkar gera okkur kleyft að bjóða vöruna á mjög sanngjörnu verði.   

Um samstarfaðila okkar Aromandise .: 

Aromandise er franskt fyrirtæki sem sérhæfir sig í lífrænum afurðum.   Aromandise er langstærsti seljandi á Matcha í heilsuverslarnir og markaði sem sérhæfa sig í lífrænum afurðum í Frakklandi og víða um Evrópu.

Samstarf Aromandise við sömu framleiðendur í Uji, Japan hefur verið óbreytt í yfir 20 ár. 

Aromandise og Gott Líf sf / Yogi.is hafa nú tekið höndum saman um dreifingu vöru Aromandise á íslandi.   Lögð er áhersla á góða vöru og sanngjarnt vöruverð.