0
Hlutir Magn Verð

"RopeYoga æfingabönd stök " hefur verið sett í körfuna þína.

Skoða körfu

RopeYoga æfingabönd stök

24.900kr
Uppselt

  • 38 blaðsíðna rafrænn bæklingur með Rope Yoga - og teygjuæfingum fylgir. Prentanlegur á PDF formi
  • Böndin festast til dæmis á krók í vegg, rimla eða hurðarfals í ca. 90cm hæð og notast ákjósanlega með þykkri æfingadýnu.  
  • Glo Motion Core / Rope Yoga æfingabönd með vönduðum æfingaleiðbeiningum sem innihalda m.a. upphitunar, styrktar og teygjuæfingar.    
  • Æfingabönd sett saman úr hágæða siglinga blökkum og  böndum, sama útgáfa og notuð er til kennslu í Rope Yoga setrinu. 
  • Áfast á krókinn er einföld festi lausn þ.e. strappi sem fellur í hurðarfals og myndar þar festu. 

Gló Motion Core / Rope Yoga æfingarnar þróaðar af Guðna Gunnarssyni hafa fyrir löngu sannað ágæti sitt sem frábærar alhliða æfingar byggðar á yoga fræðunum þar sem lögð er áhersla á rétta líkamsstöðu út frá kvið , djúpa öndun , kyrrð og núvitund.     

Glo Motion Core / Rope Yoga æfingar styrkja og móta allan líkamann með sérstaka áherslu á kvið,  mjaðmir, læri, axlir og handleggi.   

Þar sem Glo Motion Core / Rope Yoga líkamsæfingarnar eru framkvæmdar mjög rólega fer saman upphitun og styrking, byrjað á æfingum með áherslu á efri hluta líkamans og síðan seinni hluti æfingakerfis fyrir fótleggi  ( eða eftir vali hvers og eins )   Að æfingum loknum er gott að framkvæma valdar teygjuæfingar á dýnu með aðstoð Glo Motion Core / Rope Yoga bandanna.   

Fyrir þá sem aðhyllast og þekkja jógafræðin er mjög gott af hefja æfingu með skönnun líkamans eða hugleiðslu og enda æfingu með slökun / hugleiðslu í nokkrar mínútur.    

Mikilvægt að huga að réttri öndun samhliða æfingum.

Ath. að mikilvægt er að nota góða þykka dýnu við æfingarnar eða þynnri dýnu á mjúku undirlagi.     

Lengd æfingakerfis er í raun undir hverjum og einum komið en tilvalið að gera valdar grunnæfingar á 10-15 mínútum en eðlilegt ef farið er yfir allt ferlið að 30-50 mínútur sé nær lagi.