Agi eða eftirsjá
Agi eða eftirsjá smella á mynd til að sjá í fullri stærð
Í lífinu þurfum við að takast á við tvennskonar sársauka.
Við getum kallað þá aga-sársauka eða eftirsjá-sársauka
Annar getur haft í för með sér tímabundin óþægindi en hinn ristir djúpt og skilur eftir ör sem lifa með þér alla ævi.
Fólk hugsar um aga sem eitthvað sem tekur frá þeim frelsi og hamingju, en hér er sannleikurinn …
Það að temja sér aga leiðir þegar fram í sækir til aukins frelsis, hamingju og árangurs.
- Aginn að fara á fætur kl. 6 gefur þér meiri tíma til að verja með fjölskyldu og ástvinum þegar líður á daginn
- Aginn að velja salatið í stað óholla skyndibitans veitir þér aukna vellíðan og orku í gegnum daginn.
- Aginn að vera einlæg/ur og heiðarleg/ur gefur þér færi á dýpra og innihaldsríkara sambandi við fólkið í kringum þig
- Aginn að ástunda æfingar gefur þér færi á að viðhalda og byggja upp líkama þinn eins og þig hefur ávallt dreymt um
Spurningin er .: Tímabundin agatengd óþægindi eða nagandi eftirsjá síðar meir.
Hvert er þitt val ?
VIVO LIFE og YOGI.is Þín velsæld - Okkar ástríða